|
|
 |
 |
|
Thursday, March 30, 2006
Já, það er sko aldeilis að styttast í það að ég komi heim, það er bara ekki á morgun heldur hinn !!.. Verð þó að seigja að þó ég hlakki mikið til er alltaf jafn erfitt að skilja hana Chloé mína eftir.. En svoleiðis verður það víst að vera. Annars efast ég ekki um það að þessi tími eigi eftir að lýða fljótt, því við taka prófin, og svo vinnan..
Stefnan í sumar er sett, eins og svo oft áður á Kaffihornið, og ég efast ekki um að það verði bara gaman að vinna með Ingó aftur. Það er alltaf eins og ég sé kominn heim þegar ég byrja að vinna þar, það er einhvernvegin svo eðlilegt.. Þó svo að það verði aðeins öðruvísi þetta árið því viti menn hann Elías littli bróðir verður að vinna með mér, það verður sniðugt.
Annað var ég að fatta, þegar ég kem heim þá fæ ég loksinns að sjá nýasta frænda minn, hann Unnar Tjörva. Ég vona bara að hann hlakki eins mikið til að sjá mig og ég hann. Svo eru það að sjálfsögðu allar systur mínar og þeirra fylgifiskar sem verður gaman að sjá..
Það sem mér þykir verst við að vera á leiðinni heim. Það er að ég næ ekki að sjá Antík spila á úrslitakvöldinu í Músíktilraunum, en það er á föstudaginn, og ég kem heim á laugardag. En ég verð bara að reiða mig á það að systurnar taki fullt fullt af myndum sem þær geta sýnt mér þegar ég kem heim.
Svo er annað.. hverjum langar að sækja mig á flugvöllinn ?? og gefa mér að borða ?? og jafnvel hýsa mig í eina nótt ??
Sjáumstbráðum..
kv Toggster
Posted at 03:08 pm by toggster
Permalink
Monday, March 27, 2006
Það er nefninlega það, ekki leiðinlegt ef þetta rætist..
Posted at 10:21 am by toggster
Permalink
Friday, March 24, 2006
Já börnin góð, ég hef ákveðið að drífa mig til lundúnaborgar yfir helgina til þess að afspóla og skemmta mér..
Góðar stundir.
Posted at 09:35 am by toggster
Permalink
Wednesday, March 22, 2006
Japanir og fleiri japanir.
Eins og Jónas benti réttilega á var ég búinn að lofa einum degi tileinkuðum uppátækjum skrítinna Japana, en sá dagur er betur þekktur undir nafninu "dagurinn sem er tileinkaður skemtilegum uppátækjum skrítinna japana", og úr því að ég var búinn að lofa, get ég ekki annað en að finna eitthvað sniðugt japanskt..
Það er aðeins eitt við "daginn sem er tileinkaður skemtilegum uppátækjum skrítinna japana" í dag, en það er smávægilegt smáatriði sem er svo lítið að það skiptir eiginlega ekki máli, þ.e að skrítna uppátækið er ekki alveg Japanskt, en eins nálægt því og hægt er...
Uppátækið er nefnilega þessi sniðugi matseðill sem einhver túristinn rakst á á Kínverskum veitingastað í kína (?!), en það sniðuga við hann eru þúýðingarnar sem eru ætlaðar til þess að auðvelda þeim sem eru ekki "kínversku" mælandi að pannta sér í gogginn.. veit þó ekki alveg hversu langt sú hjálp nær..
(Jap)Kínverskur matseðill í vafasamri þýðingu
Posted at 05:51 pm by toggster
Permalink
Tuesday, March 21, 2006
..lítið að frétta héðan.. er farinn að hlakka til að komast í sveitasæluna.. vaknaði í frekar vondu skapi í morgun.. tékkaði á kúrbítnum og fann þar mynd sem kom mér í gott skap..
missjú gæs
Posted at 12:33 pm by toggster
Permalink
Thursday, March 16, 2006
Viðseljumengarlandbúnaðarafurðir hér.. af hverju skrifa ég þetta, vegna þess að ég upplifði nákvæmlega þetta atriði um daginn. Ég var í göngutúr í góða veðrinu, á leiðinni til þess að kaupa egg á bóndabænnum hérna við hliðina, sem ég geri svo oft þegar mig langar að búa mér til ommilettu, nema hvað þetta skiptið var örlítið öðruvísi. Þegar ég kem upp að bóndabænnum, situr þar kona fyrir utan, með gleraugu og skjal yfir höfðinu og kallar til mín einhver orð sem ég á bágt með að skilja, en þegar ég kem svolítið nær heyri ég hana seigja.. egggg !.. langar þig að kaupa EGGGG ?! Ég stóð varla í lappirnar, og langaði mest að hlaupa skrækjandi í burtu til að seigja einhverjum frá, en þá fattaði ég að ég að það hafa sennilega ekki svo margir séð Stellu í orlofi hér í landi. Því ákvað ég bara að halda mínu striki og versla hjá konunni egg, og gekk síðan í burtu með 25 stykki, fyrsta flokks ungaegg. Það versta var að ég gat ekki hægt að brosa að konunni. Hún hefur eflaust haldið að ég væri á einhvern hátt að gera grín að henni, og ekki álsa ég henni það, líkurnar á því að hún geri sér grein fyrir því af hverju ég var að brosa, eða að hún hefði skilið af hverju ef ég hefði reynt að skýra það fyrir henni eru frekar littlar, en núna fer ég þangað í það minnst einu sinni í viku, og næ mér egg.
En á örðum nótum, þá er búið að vera nóg að gera, blessuð tölvan er loksinns kominn í ásættanlegt stand, og ég er að vinna í því að endurgera nokkur verkefni sem týndust, það er nú bara svona.
Í gær skelltum við Tómas okkur í svakalegasta kokteilpartý vorsinns hérna í belgíu. Það vildi nefninlega svo til að mamma hans Tómasar, vann miða á opnunarpartý the atomium efitir að það var búið að ganga í gegnum svakalegar endurnýingu, en það var byggt árið '58 í tilefni heimssýningarinnar í bBrussel, og er hálfgerður effelturn þeirra belga. Skemtilegt að seigja frá því að hún vann miðana í Krossgátusamkepni, og núna loksinns skil ég af hverju þær á bókasafninu í nýheimum sitja sveittar við krossgátublöðin daginn út og inn.. En í stuttu máli var þetta svakalega leiðinlegt partý, en samt svolítið kúl að vera þarna í góðum félagsskap Belgíska Kóngsinns og öðru hefðarfólki og vipum..
Posted at 10:54 am by toggster
Permalink
Saturday, March 11, 2006
Já, það má sko alveg blóta þegar eitthvað svona gleðilegt kemur uppá. Það vildi nefninlega svo til að windows-ið á gamla góða lappanum mínu dó, og með því 2. vikna vinna í skólanum. Sem betur fer var ég búinn að taka mynd af harðadisknum nýlega, svo að ég tapaði ekki öllu árinu, en tvær vikur eru samt helvíti töff. Ég get þo huggað mig við það að allt sem ég er með á lappanum sem er framleitt af Microsoft er stolið héðan og þaðan.. fær mann til að vorkenna aulunum sem borguðu fyrir þetta apparat.
Þannig að síðustu dagar hafa farið í lítið annað en að koma tölvunni í stand og vinna upp það sem tapaðist. En ég get huggað mig við það að ég er alveg að koma heim. Hlakka ekkert smá til. Það verður svosem enginn tími til að halda upp á heimkomuna, vegna þess að pófin byrja vara 2 vikum eftir að ég kem heim, en það verður samt eflaust splæst í einn eða tvo öl, svo er ég að vona að hann pápi grilli eitt af sínum "heimsfrægu" lambalærum, við verðum bara að sjá til !
En fyrir utan tölvuvesenið er allt í góðum gír hérna megin í evrópu. Lífið gengur víst sinn vanagang þótt suma daga sé það örlítið meira krefjandi en aðra, en svoleiðis er það nú bara og lítið annað að gera en að njóta þess sem maður á ( þó svo að það sé framleitt af Microsoft )
Posted at 01:51 pm by toggster
Permalink
Wednesday, March 08, 2006
Hún á afmæli hún hrafnhildur, hún á afmæli í dag.
Skvísurnar Hrafnhildur og Sunna útá róló
Til Hamingju með daginn Hrafnhildur mín, ég sakna þín !
Posted at 02:56 pm by toggster
Permalink
.. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég er alveg að fara yfirum. Skemtilegt þegar þegar það er svona mikið að gera, þá líður tíminn hraðar, og von bráðar verð ég að borða grillað lambalæri og drekka íslenskann bjór í sumarblíðunni á Hraunhól 8.
Getiggi beðið.
Posted at 02:43 pm by toggster
Permalink
Monday, March 06, 2006
Bruce's Philosophers Song
Monty Python
Bruce's Philosophers Song
Immanuel Kant was a real pissant
Who was very rarely stable,
Heidegger, Heidegger was a boozy begger
Who could think you under the table,
David Hume could out-consume,
Wilhelm Freidrich Hegel.
And Wittgenstein was a beery swine
Who was just as schloshed as Schlegel.
There's nothing Nietzche couldn't teach ya
'Bout the raising of the wrist.
Socrates himself was permanently pissed.
John Stuart Mill, of his own free will
On half a pint of shandy was particularly ill.
Plato, they say could stick it away,
Half a crate of whiskey everyday.
Aristotle, Aristotle was a bugger for the bottle,
Hobbes was fond of his dram,
And René DesCartes was a drunken fart
"I drink, therefore I am."
Yes, Socrates himself is particularly missed,
A lovely little thinker but a bugger when he's pissed.
Posted at 05:11 pm by toggster
Permalink
|
|
|